Ljúffeng nýjung á veisluborðið
Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Þrjár mismunandi gerðir af ljúffengum kjúklingaspjótum eru nú í boði hjá Tertugalleríi Myllunnar. Þessi frábæra nýjung er í boði í soja, cilli eða BBQ útfærslu og er hreint frábær viðbót á veisluborðið.
Kjúklingaspjótin koma á 25 stk. bökkum og er þeim einfaldlega stungð í 200 gráðu heitan bakaraofn á celsius og hituð í um það bil 12 mínútur. Einfalt og svo þægilegt.
Svo má að sjálfsögðu einnig grilla spjótin, ef aðstaða leyfir og stemning er fyrir því.
Mörgum finnst gott að gæða sér á kjúklingaspjótum með kaldri sósu, t.d. súrsætri sósu, sinnepssósu, hvítlaukssósu eða annarri tilbúinni eða heimagerðri sósu. Það er því um að gera að spá aðeins í hvers konar sósur þér finnst fara best með spjótunum.
Við minnum jafnframt á að spjótin eru kælivara og mikilvægt að þau séu höfð í kæliskápnum allt þar til þau fara í ofninn.
Kynntu þér allar þrjár gerðirnar eða kjúklingaspjót með soja, kjúklingaspjót með chilli og kjúklingaspjót með BBQ og gerðu veisluborðið enn glæsilegra og girnilegra.
Á myndinni eru kjúklingaspjót með soja.