Bæði góðar og glæsilegar

Útgefið af Helga Guðrún Jónasdóttir þann

Er útskrift í vændum? Þá getum við óhikað mælt með okkar allra bestu marsipantertum, glæsilega skreyttum og með áritun sem hæfir tilefni dagsins. Þú velur textann þegar þú gengur frá pöntuninni, auk þess sem þú getur fengið á tertuna þína prentaða mynd að eigin vali.   

Eftir mikla vinnu og álag er gaman að gleðjast með sínum nánustu áður en næsti kafli tekur við.

Marsipanterturnar frá Tertugalleríi Myllunnar er jafn góðar og þær eru glæsilegar. Þú getur valið um fjórar bragðtegundir eða jarðarberjafrómas með jarðarberjum, súkkulaðifrómas með kokteilávöxtum, irishcoffeefromas með kokteilávöxtum og karamellufrómas með daim og kokteilávöxtum.

Þá koma þessar dásamlegu tertur í nokkrum mismunandi stærðum og gerðum eða allt frá 12 manna marsipanhringjum og 30 manna bókartertum að 40 manna marsipantertum, ásamt mismunandi millistærðum þarna á milli. Sjáðu hvaða stærð og gerð hentar þinni útskriftarveislu hér á vef Tertugallerísins.

Við minnum síðan á aðra vænlega og girnilega kosti fyrir útskriftina frá Tertugalleríi Myllunnar. Sumum finnst kransakaka ómissandi af þessu tilefni á meðan aðrir hafa augun frekar á brauðtertu eða brauðsalötum. 

Skoðaðu úrvalið og veldu það sem þér líst best á fyrir útskriftina.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →