Fréttir
Fullveldisdagurinn er 1. desember
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Þann 1. desember árið 1918 varð Ísland fullvalda ríki og öðlaðist sjálfstæði frá Dönum. Litlum sögum fer af hátíðarhöldum þennan dag í upphafi en Tertugalleríið telur fulla ástæðu til að fagna með þjóðlegu bakkelsi.Aðventan nálgast
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Það styttist óðum í fyrsta sunnudag aðventunnar og því má með sanni segja að jólin nálgist óðfluga. Í ár ber fyrsta sunnudag í aðventu upp þann 27. nóvember og því ráð að panta tímanlega ef þú vilt bjóða upp á ljúffengar kaffiveitingar frá Tertugallerí þennan dag.
Tertugallerí bakaði afmælistertu Smáralindar
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Við hjá Tertugallerí státum okkur af því að ekkert verk sé of lítið og ekkert of stórt fyrir okkur. Við afgreiðum allt frá einni tertu með kaffinu til risa terta og hikum ekki við neitt verk. Þetta sannaðist á dögunum þegar við bökuðum gómsæta súkkulaðitertu fyrir Smáralind, sem fagnaði 15 ára afmæli sínu.
- Merki: súkkulaðikaka, súkkulaðiterta, terta, tertur, tertur með mynd
Feðradagurinn er 13. nóvember!
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Við Íslendingar höfum haldið mæðradaginn hátíðlegan um langt skeið en styttra er síðan við fórum að halda upp á feðradaginn. Það gerðist fyrst árið 2006 og má segja að það hafi sannarlega verið kominn tími til. Feður eru mikilvægar fyrirmyndir barna sinna, stoð þeirra og stytta og mikilvægt að heiðra þá fyrir framlag sitt.
- Merki: feðradagur, feðradagurinn, marengsbomba, marengsterta, súkkulaðiterta, terta, tertur
Gómsætar tertur með mynd
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Fátt er vinsælla hjá okkur í Tertugallerí en tertur með mynd. Hvort sem tilefnið er afmæli, fermingar, fyrirtækjaboð eða útskrift eru tertur með mynd eftirsóttar og skemmtilegar. Í mörgum fyrirtækjum tíðkast svokallað föstudagskaffi og þá hefur verið vinsælt að prenta sniðugar og skemmtilegar myndir á tertuna. Skoðaðu úrval okkar hjá Tertugallerí og láttu hugarflugið ráða þegar þú velur mynd á tertuna þína!
- Merki: súkkulaðikaka, súkkulaðiterta, terta, tertur, tertur með mynd