Fréttir
Alltaf sígild og alltaf flott
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Ferming markar þau skemmtilegu timamót að unglingurinn á heimilinu kemst í fullorðinna manna tölu. Þetta þótti mikill áfangi og þykir enn, enda þótt ferming marki ekki lengur upphaf fullorðinsáranna hjá ungu fólki, eins og venjan var. Eitt hefur þó ekki breyst í tímans rás og það er stolt staða kransakökunnar á fermingarveisluborðinu. Með glæsta turnlögun og einstakar skreytingar ber kransakaka alltaf með sér einhvern einstakan hátíðarbrag. Þá er þetta augnkonfekt sem kakan er, ekki síðra í munni, þar sem hver biti bráðnar, stökkur að utan en svo mjúkur að innan. Það allra skemmtilegasta við kransakökuna er þó, að hún bragðast...
Gefðu þér tíma
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Annatímar fara senn í hönd hjá Tertugalleríi Myllunnar. Við erum afar stolt af handverki kökugerðarmeistara okkar, sem anna aðeins takmörkuðum fjölda pantana á degi hverjum. Það er því mikilvægt að panta tímanlega, svo að afgreiða megi pöntunina þína á þínum degi. Afgreiðslufrestur getur lengst ef pantað er með skömmum fyrirvara. Þannig tryggjum við gæði í fremsta flokki á öllum stigum köku- og tertugerðar Myllunnar. Og þú nýtur undirbúningsins fyrir fermingarveisluna mun betur. Þá er ekki minna mikilvægt að muna að pantanir sem eru sóttar um helgar þarf að ganga frá á söluvef Tertugalleríisins fyrir kl. 14:00 á föstudögum. Og um...
Fátt betra á köldu vetrarkvöldi
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Okkur langar þessa vikuna að mæla með frönsku súkkulaðitertunni okkar. Óviðjafnanleg súkkulaðikakan er ríkulega skreytt jarðaberjum, bláberjum og súkkulaðispænum og bráðnar þetta hnossgæti bókstaflega í munni. Er spilakvöld í vændum, saumaklúbbur eða afmæli? Þá er málið leyst. Fátt er betra á köldu vetrarkvöldi en þétt og bragðgóð kaka úr ekta súkkulaði. Franska súkkulaðitertan er 35% dökkt súkkulaði og með rjóma finnst mörgum kakan verða algjörlega fullkomin. Svo eru líka þau sem vilja frekar hafa góðan ís með, eins og vanillu rjómaís og jafnvel heita karamellusósu með. Bara svo að nokkur dæmi séu nefnd, en möguleikarnir eru skemmtilega margir. Franska súkkulaðitertan...
Gerðu stóru stundina enn skemmtilegri og persónulegri með skrautskrift
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Kökur gegna lykilhlutverki á mögum af okkar stærstu hamingjustundum eins og brúðkaupi, skírn eða stórafmælum. Ástæðan fyrir þessu er einföld. Kökur gleðja. Þær gera lífið okkar skemmtilegra með munnfylli af hamingju og vellíðan og miðla þannig með ljúfu móti mikilvægi stundarinnar; að hittast og njóta þess að vera saman. Kökur í einstökum og einlægum búningi Kökuskreytingar laga kökuna að tilefninu og mynda þannig skiliin á milli hversdags og spari í kökugerð. Einn mikilvægasti liðurinn hér eru áletranir ásamt þeim skilboðum sem í þeim felast. Þetta er tækið sem gerir okkur kleift að færa kökuna í einstakan og um leið einlægan...
- Merki: Marsípan, marsipanterta, marsípantertur, skírnarterta, skírnartertur, skírnarveisla, úskriftartertur, Útskrift, útskriftartera, útskriftarterta, Útskriftarveisla
Ferskbakað til að njóta samdægurs
Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann
Við hjá Tertugalleríinu viljum alltaf bjóða upp á ferskar og bragðgóðar vörur á veisluborðið þitt þannig að þú og gestir þínir fáið að upplifa okkar bestu gæði. Við leggjum því mikla áherslu á að tertur, eins og ferskar matvörur, eru bestar þegar þær eru nýjar – semsagt alveg nýbakaðar. Allar kökur og tertur Tertugallerísins eru ferskvörur sem þýðir að þær eru bakaðar sama dag og afhending fer fram, svo þeirra megi njóta þegar þær eru ferskastar og með mestu gæðin fyrir bragðlaukana. Þetta á líka við um brauðterturnar og aðrar brauðvörur frá Tertugalleríinu, því staðreyndin er sú að ferskt brauð...
- Merki: Ferskbakað